Kerfisleiga
AT hýsing sér um rekstur á vefhugbúnaði og veflausnum sem eru í notkun hjá hundruðum innlendra sem og erlendra fyrirtækja.
Disill CMS
Vefumsjónarkerfi
Dísill vefumsjónarkerfið er eitt aðgengilegasta og sveigjanlegasta vefumsjónarkerfi á markaðnum í dag. Kerfið býður upp á óþrjótandi möguleika við uppbyggingu, viðhald og umsjón vefja, enda notendur þess í dag vel á átta hundruð og þar á meðal mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.
Dísill varð til árið 1999 og hefur verið í stöðugri þróun síðan eða í rúm tíu ár.
Disill STORE
Vefverslunarkerfi
Dísill Store netverslun er kerfisviðbót við Dísill CMS vefumsjónarkerfið.
D-Store er öflug lausn sem vex með þínu fyrirtæki. Hentar jafnt fyrir umfangsmiklar eða smærri netverslanir. Í Disill Store er mikil áhersla lögð á eiginleika til leitarvélabestunar, sveigjanleika í framsetningu og auðvelda umsýslu gagna/vara.