Workforce
Workforce er tímaskráningar og viðverukerfi sem veitir heildarlausn fyrir fyrirtæki sem vilja halda nákvæmlega utan um tímaskráningar, verkefnastjórnun og viðveru starfsmanna. Kerfið nær yfir öll stig verkferla og gerir rekstur fyrirtækisins mun skilvirkari.
Á svona tímum er gríðarlega mikilvægt fyrir fyrirtæki að halda sérstaklega vel utan um vinnu og viðveru til að ná sem bestri nýtingu.
Kerfið er notendavænt, viðmótið er þægilegt og auðvelt er að sníða kerfið eftir þörfum hvers fyrirtækis. Nýjasta viðbót kerfisins er möguleiki á að starfa í kerfinu í gegnum GSM síma.
WorkForce vinnur eins og stimpilklukka fyrir starfmenn og skráir tíma á þau verk sem verið er að vinna í hverju sinni. Starfsmaður skráir nákvæmar athugasemdir við útstimplun í hverju verki fyrir sig. Það gerir starfsmönnum kleift að fylgjast með framvindu verkefna og auðveldar á sama tíma stjórnendum að fylgjast með gangi mála.
Kerfið býr til skýrslur, reikninga og úttektir fyrir verkefni fyrirtækisins á einfaldan og skilvirkan hátt. Þannig fá stjórnendur nákvæma yfirsýn yfir þann tíma og kostnað sem farið hefur í einstök verkefni.
Uppsetning og innleiðing er afar einföld og fljótleg. Hver notandi fær uppsett forrit á sína vél og getur byrjað að skrá tíma í kerfið strax.
WorkForce er einfaldlega besta lausnin í skipulagi og vinnslu verkefna í fyrirtækjarekstri. Með notkun kerfisins skilast mælanlegur ávinningur og jafnframt tímasparnaður sem skilar sér í útgjaldasparnaði.
Helstu kostir:
- Heldur utan um verkferla og viðveru starfsmanna
- Þægilegt og notendavænt viðmót
- Nákvæm skráning sparar tíma og dregur úr kostnaði
- Gerir rekstur fyrirtækja skilvirkari
- Ýmsir möguleikar á skráningum og skýrslum
- Miðlægur gagnagrunnur er stór kostur kerfisins
- Tengingar með tölvu og farsíma
- Hægt er að tengjast því hvar sem er
- Virkar bæði fyrir Windows PC og Apple Mac
Sjá tækniupplýsingar um WorkForce hér